03.11.2008 19:41:49 / Kiddi

Nía-sti fokkerinn

Hæ öll...
Maður er nú kannski dálítið seinn að þessu en þann 24. ágúst síðastliðinn eignuðumst ég og hún Þórdís dóttur, hana Stefaníu.
Ég setti link inná heimasíðu hérna fyrir neðan og ef einhver fokker er áhugasamur um lykilorðið þá veit ég að Sæja lumar á því og svo getið þið sent mér póst á heb1(hjá)hi.is



paus át...

Heimir og StefaNýja

http://barnanet.is/bingobongo


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.10.2008 20:56:22 / sindrik

Hjón!



Við giftum okkur víst í sumar en höfum trassað það að sýna fram á það - a.m.k. með myndefni. Hér er ein og ekki skemmir bakgrunnurinn fyrir. Meira á Facebook.

kv. Sindri og Ranný


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.07.2008 20:39:12 / nesi

Íslandsmeistari


Nú þykist ég vita það að einhverjir hafa fylgst með henni Helenu okkar fara á kostum í dag, þar sem hún varð Íslandsmeistari kvenna í golfi í annað sinn. Fyrir tveimur árum varð Dellan líka meistari og vann titilinn í bráðabana. Hún gerði manni þetta svo ekki auðveldara núna þar sem ég er búinn að naga allar neglur í tætlur eftir bráðabanann hjá henni í dag. En hún hélt heldur betur kúlinu og auðvitað var þetta aldrei spurning. Glæsilegur árangur hjá litlu systur og óneitanlega gaman að sjá fokker verða Íslandsmeistara á ný. Sjáið líka hvað hún er töff!

» 5 hafa sagt sína skoðun

13.06.2008 11:18:35 / María

Frægar

Hildigunnur og Sissú voru í Mogganum í gær, fegurðin hreinlega geislaði af þeim þar sem þær sátu með Jóni Má í myndatökunni þegar við útskrifuðumst;)
Skal reyna að skella myndinni inn við tækifæri;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

27.04.2008 21:12:38 / Kiddi

Svo ung og saklaus...















Fann þessar myndir inná MA vefnum...vona að þið hafið haft gaman af;)

// Hulda


» 12 hafa sagt sína skoðun

24.03.2008 19:10:30 / Helena

Brúðkaup

Sælar elskurnar mínar! Nú ætla ég að standa við loforð sem ég gaf henni Rannveigu, eftir að hún kallaði mig hóru- takk fyrir það, á þeim ágæta stað Café Amor á föstudaginn langa og koma hér með tilkynningu!

Rannveig og Sindri ætla að ganga í heilagt hjónaband í sumar! Jiiiiii haldiði að það sé! Þetta eru mjöööög merkileg tíðindi, þar sem þetta eru fyrstu fokkerar sem munu "tie the knot". Já til hamingju elskurnar, mér finnst þetta alveg ofsalega fallegt allt saman:)


» 24 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 17:22:46 / Kiddi

Sælar druslurnar mínar

Takk fyrir sídast. Tvílík og önnur eins unadssamkoma....bara svei mér tá sú magnadasta í manna minnum.

Tar sem ég veit ad fleiri en ég voru med kamerurnar á lofti í fokkarapartíinu í Innbænum lysi ég hér med eftir ljósmyndum af FFFFallegasta, FFFlottasta, FFFrábærasta, FFFjölskrúdasta og FFFjörlegasta fólkinu í heiminum geiminum...nefnilega fokkurum! 

Ég er búin ad eiga í bölvudu basli med ad koma myndunum mínum á alheimsnetid - hef tegar gert tvær tilraunir og mun von brádar reyna í tridja sinn.

Yours 4ever

Hulda 


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.12.2007 20:04:50 / Kiddi

PERTÍPLEIS

Haldinn verður gleðskapur að Aðalstræti 17, annað kvöld. Fólk er beðið að mæta vel drukkið og kengruglað með nóg af slauni og flönum til að þreyja þjórháttinn auðveldlegar. Mælzt er til að menn láti sjá sig þegar klukkan slær níu að kvöldi, í norðurenda hússins sem er að norðanverðu.

Jólakveðjur,

Elmar, talsmaður gleðskaparstjórans Huldu Hallgrímsdóttur.


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 08:40:43 / sindrik

Wasabi

Heil og sæl,

Shitturinn titturinn mellan og hóran! Ég er svo ánægður með þessa síðu.

Er ekki alveg þess virði að skoða það hverjir verða á Akureyri um jólin og hugsanlega þá stefna á einhvern hitting með tilheyrandi misnotkun áfengis?

Kommentið aumingjarnir ykkar!

Ská


» 23 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 12:02:47 / Kiddi

ok...

hvað er að ske

 

ég setti inn myndir frá laugardaginum, þær eru neðst undir myndir 2007 

 

check it

kv steinunn


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 13:11:24 / Helena

Jæja

Já ég er sammála þér Emmi að bústaðarsukk hefði verið Hreinn Unaður, ef ekki Hringsson bara! En þeir sem ég hef talað við og þeir sem hafa skrifað styðja frekar borgarsukk þannig að það verður málið bara er það ekki? Nú rétt er það hjá Helenu og Sæsu Ben að það er alls ekki þörf á að fara í bæinn þó við verðum í borginni og styð ég heilshugar að drepast öll saman í partýinu!

Þá er spurningin bara hvar á að halda teitið??? Árni var að tjá mér að Stony hefði jafnvel haldið að það gæti verið heima hjá henni...?

Og nú hefst tveggja daga niðurtalning...avúhú!!!!!

Fokk it,

Ernie
 


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 11:01:17 / Helena

Fokkings fokk

Jæja mín elskuðu!

Hvernig er staðan á ykkur fyrir bústaðaferðina? Ég, Stony og Sæsa Ben vorum að ræða málin á msn áðan og vorum að spá hvort að upp væri komin sú staða að þörf væri á að færa fögnuðinn bara í borgina. Nú eru 8 sem eru búnir að staðfesta eftir því sem ég best veit...Ég, Stony, Sæsa, Árni, Nesi bró, Egill, Emmi og Hulda. Ef ég er að gleyma einhverjum biðst ég forláts...Ég heyrði að Helgi væri ekki 100% viss sökum þess að hann er svo ástfanginn (aumingi) og Heimir er hugsanlega að fara í innflutningspartý (aumingi) og Jói..hvernig er með þig? Helena Hallgríms, varst þú búin að ákveða þig? Heiða Pálrún mín? Nú Akureyrarpakkið kemur ekki og pilotinn er fastur í Eyjum, ég hitti hann einmitt þar á föstudaginn sem var unaður! Þannig að já, spurningin er hvort að mönnum finnist þess virði að keyra alla þessa leið? Eða hvort að skytturnar þrjár muni frekar komast ef að við færum þetta í borgina? Auðvitað viljum við að sem flestir komist!

 

Endilega segiði hvað ykkur finnst um þetta...nú þið megið líka segja steinþegiði stelpur, við förum bara...en já...nú er kominn tími til að negla þetta endanlega niður...og jafnvel líka kominn tími til að tengja (djöfull er það gott lag!)

Fokk off,

Helena Sörenstam


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 11:06:56 / Sæja

Fokk it!

 Fokkarar!
Það styttist óðum í hina æsilegu partýhelgi og þörf á að fara að plana hlutina.Ég fékk semsagt fjölskyldubústaðinn og er hann staðsettur á leiðinni í Húsafell, rétt hjá Barnafossi og Hraunfossum fyrir þá sem til þekkja.Gáfaða Sæsa Ben tvíbókaði sig þessa helgi sem við vorum að tala um þ.e. 14-16 sept.

Óttist þó eigi. Málið er bara það að ég kemst eiginlega ekki á föstudagskveldinu en er laus og liðug á laugardagskvöldinu.  

Langar því bara að vita hvort fólk komist almennt þá (Laugardaginn/kvöldið 15.sept) og hverjir ætli að koma svo hægt sé að fara að raða í bíla og svona.Koma svo! Vil líka nota tækifærið og óska fokkaraflugmanninum okkar til hamingju með hringinn;)Sæsa Ben

» 12 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 22:54:36 / nesi

Útilegu update

Ég hef aðeins verið að grennslast fyrir varðandi mögulega staði og hafði m.a. samband við þau í Þórsmörk sem tóku ekkert illa í það að við kæmum en gátu litlu lofað um að hægt væri að komast eitthvað frá öðru fólki þannig að þar værum við sennilega að tala um að það yrði að vera komin á ró í kringum miðnætti. Að mínu mati er það alveg glatað. Nú í vikunni ætla ég að hafa samband við einhverja sem leigja út bústaði og sjá hverjir möguleikarnir eru þar. Ég er bara að skoða 17. ágúst, eða þá helgi, þar sem við þyrftum væntanlega að borga fyrir helgina ef við yrðum í bústað. Því ítreka ég það við þá sem hafa áhuga á þessu að gramsa aðeins í kollinum og sjá hvort þeir þekki einhvern sem á jörð, bústað...já eða ef mönnum dettur eitthvað sniðugt í hug. Fokk Jú.

 

Update: Hef verið að ræða við fólk og leita mér upplýsinga. Flest, ef ekki öll tjaldsvæði eru nú að hamast við að taka upp 25 og jafnvel 30 ára aldurstakmark. Þó skilst mér að það sé tjaldsvæði í Borg í Grímsnesi þar sem er ekkert aldurstakmark og allt voða chillað varðandi smá partýlæti. Þetta hef ég frá manneskju sem vinnur þar þannig að það ætti að vera eitthvað mark takandi á því. Engu að síður ætla ég að hringja þangað og kanna málið og læt svo vita hér. Einn sem ég ræddi við stakk upp á því að við færum bara upp í heiðmörk og kæmum okkur fyrir eitthvað í burtu frá öllu öðru. Kosturinn við það er auðvitað sá að Heiðmörk er basically í Reykjavík (Kópavogi...whatevA) þannig að það er stutt að fara fyrir okkur bæjarrotturnar. Kosturinn við að vera að tjaldsvæði væri auðvitað sá að það væri þannig lagað miklu minna vesen og aðbúnaður til staðar. Any thoughts?


» 23 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
MYNDIR 2007
Afkvæmi 4.F